31. Mar 2026 · beggi

Ný heimasíða Kunnáttu

Kunnátta ehf. er komin með nýja heimasíðu! Mikið hefur breyst hjá fyrirtækinu á síðustu misserum og var kominn tími til að vefsíðan endurspeglaði það.

Við höfum á undanförnum árum þróast úr tæknifyrirtæki sem þjónustaði aðallega skólastarf yfir í hugbúnaðar- og gervigreindisfyrirtæki sem byggir lausnir fyrir bæði fyrirtæki og menntastofnanir. Í dag er starfsemin okkar í grunninn þríþætt — við smíðum SaaS lausnir, sérsmíðum hugbúnað og veitum ráðgjöf og fræðslu um gervigreind.

Á nýju síðunni er auðvelt að finna yfirlit yfir vörur okkar, þjónustu og verkefni. Einnig munum við birta hér fréttir, greinar og tilkynningar um nýjungar í starfseminni.

Velkomin á nýja vefinn!