Kunnátta

Við þjónustum skóla, fyrirtæki og sveitarfélög

Við búum yfir mikilli reynslu þegar kemur að tækni og tæknilausnum

Reynsla

Við erum með yfir 10 ára tæknireynslu í skólum

Ráðgjöf

Við þjónustum fyrirtæki varðandi upplýsingatækni

Þjónusta

Við veitum góða og persónulega þjónustu

Hvaða þjónustu bjóðum við upp á?

Fyrir skóla veitum við alhliða tækniþjónustu byggt á margra ára reynslu. Þjónustan nær frá uppsetningu kerfa til sérsniðinnar kennsluráðgjafar, sem styður við nýja kennsluhætti og eflir stafræna hæfni nemenda.

Fyrir fyrirtæki sérhæfum við okkur í gervigreindarlausnum sem auka skilvirkni og samkeppnishæfni. Við hjálpum fyrirtækjum að nýta möguleika gervigreindar til að einfalda ferla og opna nýja viðskiptatækifæri.

Okkar markmið er að veita framúrskarandi þjónustu með persónulegri nálgun og sérfræðiþekkingu.

Kennsluráðgjöf

Við veitum kennsluráðgjöf til kennara og stjórnenda

Persónuleg þjónusta

Fljót og góð þjónusta er eitt af aðalsmerkjum okkar

Umsýsla kennslukerfa

Við sjáum um uppsetningu, stillingar og rekstur kerfa

Heimasíðugerð

Byggjum fyrsta flokks heimasíður fyrir skóla og fyrirtæki

Námskeið og fræðsla

Mikið úrval af námskeiðum sem nýtast í námi og starfi

Ráðgjöf

Við veitum ráðgjöf varðandi flest sem snýr að tækni í skólum

Framtíðarsýn

Tæknin er lykillinn að framþróun. Í skólum hjálpum við nemendum að tileinka sér nauðsynlega færni framtíðarinnar með markvissum tæknilausnum. Fyrir fyrirtæki bjóðum við sérsniðnar gervigreindarlausnir sem styðja við nýsköpun og vöxt. Með skýrri stefnu gerum við innleiðingu einfaldari og árangursríkari.

Kennsluráðgjöf

Stór þáttur í því að auka við tækni í skólastarfi er að veita kennurum og stjórnendum aðgang að fyrsta flokks ráðgjöf aðila sem hafa þekkingu á ferlinu. Ráðgjafar okkar hafa mikla reynslu í að aðstoða starfandi kennara við að innleiða tæknina í sína kennslu.

Kerfisumsjón

Til að halda úti framsæknu skólakerfi er nauðsynlegt að kennarar hafi í sínum höndum aðgang að því besta sem er í boði. Fjölmörg kennslukerfi eru til sem hægt er að taka upp og sníða að þörfum hvers og eins. Við komum með tillögur og setjum upp og stýrum þeim kerfum sem ákveðið er að nota.

Námskeið í boði

Í gegnum starf okkar höfum við haldið fjöldann allan af námskeiðum og málstofum um allt land. Frá námskeiðum um kerfisumsjón til námskeiða um stuðning við nemendur með tækni. Við einbeitum okkur alltaf af því að skila af okkur efni sem kennarar geta notað beint í sína kennslu.

Samþætting tækninnar við skólastarf hefur margvíslega kosti í för með sér sem efla bæði nám og kennslu. Með tækninni er hægt að nálgast mikið af stafrænum auðlindum, svo sem kennsluforritum, gagnvirka leiki og gagnasöfn sem auðga námsefnið og gera námsefnið fjölbreyttara. Tæknin auðveldar einnig einstaklingsmiðað nám þar sem nemendur geta lært á sínum hraða og á þann hátt sem hentar best þeirra námsstíl. Mikilvægt er að með notkun tækninnar séu nemendur undirbúnir fyrir hinn stafræna heim og búi yfir nauðsynlegri tæknikunnáttu sem er nauðsynleg til að ná árangri í námi og starfi í framtíðinni.

Kunnátta

Er fyrirtæki sem býður bæði skólum og fyrirtækjum upp á sérfræðiþjónustu í upplýsingatækni. Fyrir skóla og sveitarfélög veitum við fyrsta flokks skólaþjónustu í tækjaumsjón og tækniinnleiðingu, byggða á mikilli þekkingu á upplýsingatækni í menntun og kennsluráðgjöf. Við þekkjum þau verkfæri sem kennarar og nemendur þurfa til að efla tæknina í námi og kennslu.

Fyrir fyrirtæki bjóðum við sérhæfðar gervigreindarlausnir og alhliða tækniumsjón. Við hjálpum fyrirtækjum að nýta nýjustu tækni til að auka skilvirkni, bæta ákvarðanatöku og styrkja samkeppnisstöðu þeirra á markaði. Með sérsniðinni ráðgjöf og þjónustu tryggjum við að tæknin styðji við markmið og þarfir hvers fyrirtækis.

Allt hefst með því að þú hefur samband við okkur!

Fyllið út formið hér til hægri til að senda okkur fyrirspurn og við höfum samband eins fljótt og kostur er.

899 3355 – Bergmann


860 2064 – Hans Rúnar

kunnatta@kunnatta.is