Hugbúnaður sem er smíðaður í kringum þínar þarfir

Við sérsmíðum hugbúnaðarlausnir frá grunni. Kerfið er hannað utan um ykkar ferla og vinnuflæði — ekki til að þvinga ykkur inn í ákveðið form.

Af hverju sérsmíði?

Tilbúinn hugbúnaður er hannaður fyrir alla — og þar af leiðandi hentar hann engum almennilega. Þegar vinnuflæðið þitt er flókið, reglurnar margar eða ferlarnir sérstakir, þá er eina raunverulega lausnin hugbúnaður sem er byggður frá grunni fyrir þig.

Við tökum okkur tíma til að skilja hvernig þið vinnið í raun og veru. Ekki bara hvað stendur í handbókinni — heldur hvernig hlutirnir gerast í alvörunni, dag hvern. Þaðan byggjum við kerfi sem einfaldar, flýtir og tryggir gæði.

Ráðgjöf

Hvernig við vinnum

01

Greining

Við hittumst og greinum þarfir ykkar. Hvernig lítur vinnuflæðið út? Hvað tekur of langan tíma? Hvar eru flöskuhálsarnir? Við kortleggjum ferlana áður en nokkuð er hannað.

02

Hönnun

Við teiknum upp lausnina saman. Þið sjáið hvernig kerfið mun virka og líta út áður en ein lína af kóða er skrifuð. Engar óvæntar breytingar — þið eruð alltaf inni í ferlinu.

03

Þróun

Við byggjum kerfið í áföngum. Reglulegar uppfærslur og prófanir tryggja að verkefnið sé alltaf á réttri braut. Þið sjáið framfarir frá fyrsta degi.

04

Afhending og stuðningur

Kerfið er afhent tilbúið til notkunar. En verkið er ekki búið þar — við styðjum við kerfið, uppfærum og bætum eftir þörfum. Þið eruð aldrei ein.

Hvað sérsmíðum við?

  • Vefkerfi og innri verkfæri fyrir fyrirtæki
  • Sjálfvirkni á vinnuferlum og skýrslugerð
  • Gervigreindarlausnir sérsniðnar að ykkar gögnum
  • Viðmót og bakendakerfi
  • API tengingar við þriðja aðila
  • Forrit fyrir iOS og vefinn
  • Kerfi fyrir skólastarf — umsýsla, mat og kennsluverkfæri
Kóði

Fyrirtæki og stofnanir í samstarfi við okkur

Við höfum byggt sérhönnuð kerfi fyrir þessar stofnanir og fyrirtæki. Hvert verkefni er einstakt — byggt á þörfum viðskiptavinarins.

Menntaskólinn á Akureyri

Sérhönnuð lausn sem gerir MA kleift að keyra vinnustofur þar sem nemendur velja sér þá tíma sem þeir sækja

Mjólkursamsalan á Akureyri

Sérsniðið stimpillesarakerfi sem minnkar mistök í framleiðslu sem þýðir að minna fer til spillis

Akureyrarbær

Sérhönnuð hugbúnaðarlausn fyrir fræðslusvið og leikskóla Akureyrarbæjar

Ertu með hugmynd að lausn?

Segðu okkur frá hugmyndinni og við skoðum saman hvort sérsmíði sé rétta leiðin. Fyrsta samtalið er alltaf ókeypis.

Hafa samband