8. Apr 2026 · beggi

Tengja-4: Orðaþraut fyrir kennara og nemendur

Við höfum búið til lítinn leik sem kallast Tengja-4 — innblásin af vinsælu Connections-þrautinni hjá New York Times, en sérsniðin fyrir íslenska kennara.

Hvernig virkar þetta?

Hugmyndin er einföld. Kennarinn býr til þraut með 16 orðum sem skiptast í 4 flokka. Hvert orð tilheyrir einum flokki og kennarinn skrifar stuttan texta sem útskýrir tenginguna á milli orðanna.

Nemendur fá svo kóða eða QR-kóða og opna þrautina í vafranum — ekkert app, engin innskráning. Þeir sjá 16 orð í handahófsröð og þurfa að finna hvaða fjögur orð tilheyra sama flokki. Þeir fá fjórar tilraunir.

Af hverju?

Við vorum að leita að skemmtilegri leið til að æfa orðaforða og hugtök í kennslunni. Connections-þrautir ganga út á að sjá tengingar á milli orða — og það er nákvæmlega sú hugsun sem við viljum æfa hjá nemendum.

Í stað þess að nota einhvern erlendan hugbúnað ákvaðum við bara að smíða tólið sjálfir. Þannig verður viðmótið á íslensku og við haft fulla stjórn á upplifuninni ásamt breytingum í framtíðinni.

Hvernig nýtist þetta í kennslu?

Nokkur dæmi:

Orðaforðaæfing — flokkaðu orð eftir orðflokkum, samheitum eða þemum
Söguæfing — tengdu saman persónur, atburði, ártöl og staði
Náttúrufræði — flokkaðu dýr, plöntur eða efnafræðileg hugtök
Stærðfræði — orð sem tengjast sömu aðgerð eða hugmynd

Kennarinn getur búið til nýja þraut á nokkrum mínútum og deilt henni strax með nemendum.

Prófaðu sjálf/ur

Leikurinn er opinn og ókeypis á tengja4.kunnatta.is. Kennarar búa til þrautir á forsíðunni og nemendur slá inn kóðann sinn á tengja4.kunnatta.is/spila.

Ef þú ert kennari og prófar þetta — endilega sendu okkur línu og segðu til hvernig gekk!